Introducing
Your new presentation assistant.
Refine, enhance, and tailor your content, source relevant images, and edit visuals quicker than ever before.
Trending searches
Og ekki gleyma að leita til ykkar eigin náms- og starfsráðgjafa sem starfandi er í Vallaskóla, til að fá upplýsingar og ræða málin :)
Menntagátt www.menntagatt.is
Ráðgjöf vegna innritunar í framhaldsskóla
Námsráðgjöf Vallaskóla
Námsmatsstofnun, 550 2400 innritun@namsmat.is
Forinnritun
Nemendur sækja um tvo skóla og setja
í fyrsta val þann skóla sem þeir vilja helst fara í.
Nemendur velja sér tvær brautir í hvorum skóla
og setja í fyrsta val braut sem þeir vilja helst fara á.
Lokainnritun
Ef hvorki áhugi né forsendur hafa breyst frá forinnritun,
þarf ekki að breyta neinu, þ.e. umsókn úr forinnritun gildir.
Mikilvægt er að staðfesta umsóknina svo hún verði gild.
Nemendur geta breytt umsóknum til miðnættis 10. júní.
Ef þú ert með vottorð eða sérstakar upplýsingar, t.d. um fötlun eða lesblindu, má grunnskólinn ekki senda þær frá sér.
Það er á ábyrgð nemanda/forráða-manna að senda viðkomandi framhaldsskóla upplýsingarnar.
Forinnritun verður 4. mars – 10. apríl.
Er ekki bindandi, en ætti að vera raunsætt val.
Starfsbrautainnritun verður 2. - 28. febrúar
Lokainnritun verður 4. maí – 10. júní (til miðnættis).
Einkunnir verða sendar rafrænt með umsóknum til framhaldsskóla.
Skoðið á Menntagátt að lokinni útskrift, hvort réttar einkunnir hafi farið inn og gerið strax athugasemd
ef svo er ekki.
Lokadagur úrvinnslu umsókna er 28. júní.
Foreldrar/forráðamenn fá kynningarbréf vegna innritunar fyrir 4. mars.
Nemendur fá leiðbeiningarbréf með veflykli að innritunarvef í skólanum.
Innritun fer fram á Menntagátt, sem er upplýsingasíða um framhaldsskóla.
Námsmatsstofnun sér um framkvæmd innritunar
en Menntamálaráðuneytið fylgist með því
að allir fái skólavist.
Olga Sveinbjörnsdóttir,
náms- og starfsráðgjafi MA